Menning

Langholtskirkja aftur af stað

Langholtskirkja Stendur fyrir öflugu tónlistarstarfi í vetur.
Langholtskirkja Stendur fyrir öflugu tónlistarstarfi í vetur.

Vetrardagskrá Kórs Langholtskirkju fer senn að hefjast og er ýmislegt áhugavert á döfinni. Mun kórinn koma fram í nýrri mynd þar sem síðastliðið vor voru gerðar skipulagsbreytingar á starfi Kórs Langholtskirkju sem fólu í sér kröfur um aukna kunnáttu kórfélaga. Fjöldi er takmarkaður við átta í hverri rödd. Með því móti á hann að vera fær um að flytja erfið verk, meðal annars fyrir tvo kóra. Jafnframt gefast kórfélögum aukin tækifæri til að koma fram sem einsöngvarar í messum og einnig á tónleikum.

Ýmislegt er fréttnæmt af kórnum; fyrst má nefna að hann er á leið til Liverpool nú í lok nóvember þar sem hann tekur þátt í flutningi níundu sinfóníu Beethovens með Konunglegu fílharmóníusveitinni undir stjórn Vladimirs Ashkenazy. Einnig syngur kórinn jólatónleika í dómkirkjunni í Liverpool. Hinir vinsælu jólasöngvar ásamt Gradualekór Langholtskirkju verða í desember með Braga Bergþórssyni, Eivöru Pálsdóttur og Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur. Í maí verða síðan stórtónleikar þar sem flutt verður Dixit Dominus eftir Vivaldi en verkið fannst ekki fyrr en árið 2005 og er fyrir kór, einsöngvara og hljómsveit. Á sömu tónleikum verður einnig flutt Magnificat eftir Vivaldi. Kórfélögum verður gefinn kostur á að syngja einsöngshlutverkin. Stjórnandi Kórs Langholtskirkju er, sem fyrr, Jón Stefánsson.

Einnig er vert að minnast á að nú um helgina kemur til landsins fjórraddaður barnakór frá Svíþjóð og heldur tónleika í Langholtskirkju á laugardag kl. 17 og syngur í messu í kirkjunni á sunnudag kl. 11. Kórinn kemur einnig fram á tónleikum í Skálholtskirkju á morgun kl. 16. Aðgangur á tónleikana er ókeypis.

- vþ








Fleiri fréttir

Sjá meira


×