Golf

Woods: Verð ekki góður fyrr en 2010

NordicPhotos/GettyImages

Stjörnukylfingurinn Tiger Woods segist ekki eiga von á því að ná sér að fullu eftir hnéuppskurð fyrr en á keppnistímabilinu 2010.

Woods er enn að ná sér eftir krossbandaaðgerð og hefur ekki spilað sínðan hann vann dramatiskan sigur á opna bandaríska meistaramótinu í júní í sumar.

Woods segist ekki reikna með því að geta sveiflað golfkylfu á ný fyrr en í fyrsta lagi í janúar.

"Það mun taka mig næstu 18 mánuði að fá 100% styrk í hnéð á ný, svo þetta verður tveggja ára tímabil sem ég verð frá mínu besta. Það er víst ekki hægt að flýta fyrir þessu ferli," sagði Woods.

Hann vann 9 af þeim 12 mótum sem hann tók þátt í á árinu og segist hafa verið í sínu besta formi á ferlinum áður en hann þurfti að fara í aðgerðina.

"Ég held að ég hafi aldrei leikið betur og þó ég hafi kannski unnið fleiri mót áður, held ég að ég hafi aldrei verið að keppa um sigur á eins mögum mótum og unnið eins mörg mót í röð og á þessum spretti. Þetta var góð rispa," sagði Woods.

Þessi frábæri kylfingur hefur unnið 65 sigra á PGA mótaröðinni og aðeins Jack Nicklaus (73) og Sam Snead (82) hafa unnið fleiri sigra í sögunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×