Handbolti

Magnús tekur við kvennaliði Gróttu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Magnús Jónsson tekur við þjálfun kvennaliðs Gróttu eftir tímabilið.
Magnús Jónsson tekur við þjálfun kvennaliðs Gróttu eftir tímabilið. Mynd/Heimasíða Gróttu

Handknattleiksdeild Gróttu hefur gert samning við Magnús Kára Jónsson um að hann þjálfi meistaraflokk kvenna í Gróttu næstu þrjú árin. Magnús hefur mikla reynslu sem þjálfari og þjálfaði hann árið 2006-2007 meistaraflokk kvenna í Fram.

Magnús Kári er núverandi þjálfari meistaraflokks karla hjá Fram og mun hann formlega taka við þjálfun kvennaliðs Gróttu 1. júní næstkomandi þegar Alfreð Örn Finnsson lætur af störfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×