Kennileiti úr minni þjóðar 29. nóvember 2008 06:00
Þrír karlmenn, tvær kynslóðir, Finnbogi og Ólafur Haukur fæddir 45 og 47, Óskar Árni fæddur 59. Þrjár bækur sem rekja æskuár, tvær styðja frásögnina myndefni sem tengjast textunum. Sögusviðið er í kjarna sínum hverfið: Njálsgata, Jófríðarstaðahverfið austan við Eiði og Þingholtin, en í endurminningunni er leitað víðar: Óskar Árni fer lengst, austur á Langanes og alla leið til Winnipeg. Bækurnar þrjár eru sjálfskönnun sem leikur á mörkum minninga, ljóðrænna stemninga og dramatískra átakapunkta úr umhverfinu, örlögum vandalausra og vandamanna: örsögum sem falla mismunandi að heildinni en verða minnisstæðastar: saga Óla af spilafíklinum, föður vinar hans; saga Óskars af örlögum Stefáns frænda hans sem markar á sinn hátt og upphaf og endi á syrpunni hans, Stefáni sem missir fótinn barn við nára norður á Siglufirði og deyr fullorðinn maður í eldsvoða í Brennu við Bergstaðastræti; sögur Finnboga af einstæðingskonum sem búa í kjöllurum Njálsgötu. Þessar sögur af hrikalegum örlögum alþýðufólks á fyrri hluta síðustu aldar standa skáldunum nærri, svo logandi sem þær eru í minningunni. Sagði ég skáld: engum blöðum er um það að fletta Ólafur Haukur og Óskar Árni eru skáld, hvor með sín persónulegu einkenni, Finnbogi er nær því að vera sögumaður í hinum forna skilningi, sögur hans af Njálsgötunni nánast heimta rödd hans. Hér mætti leggjast í langar hugleiðingar um skil sjálfssögu og skáldsögu, hvernig sjálf skrifarans stýrir pennanum og frásögninni. En til hvers? Kjarni málsins er að hér er að finna leiðarlýsingu á ferð aftur í tímann þar sem ýmis brögð frásagnartækni eru nýtt til að draga fram skærar minningar af hversdagslegum lifnaðarháttum bæði í jaðri og miðju þéttbýlisins á árunum eftir stríð og fyrir viðreisn. Óskar bætir við tveimur glæsilegum bogum frá öðrum tímum: sögu afa sinna og ömmu og þó sérstaklega örlögum Magnúsar Stefánssonar skálds sem eiga sér samsvörum í flandri hans sjálfs um landið í nýliðinni tíð. Í aðferð Óskars er að finna tærasta vinnslu textans þar sem dýrðin á hverdagslegri ásýnd hlutanna er dregin fáum ljósum dráttum. Það er tilgangslítil aðgerð að bera saman frásagnarhátt þeirra þriggja, Finnbogi hefur minnstan metnað til að vinna með verkið á skáldlegan hátt, heldur sig við hefðbundnar aðferðir þótt í þeim frásagnarhætti geymi hann margar örsögur. Ólafur smíðar sér ramma og dregur inn fyrir hann efnið. Byggingin er flóknust hjá Óskari þótt textavinnsla hans gangi lengst í hreinsun óþarfa burt, nýti með beinum hætti tilvitnanir í bréf og frásagnir annarra. Allt eru þetta gefandi bækur og bregða skærum ljóma á örlög sem virðast okkur fjarri en standa samt ljóslifandi fyrir okkur eins og logandi teikn á vegg hvar við höfum verið, hvert við erum komin og kenna þannig auðmykt sem er hreinsandi á þessum skuldadögum sem við nú lifum. Finnbogi Hermannsson Ólafur Haukur Símonarson Óskar Árni Óskarsson
Mest lesið Stöðugt spurðir hvers vegna þeir ættleiddu ekki bara Lífið Sjóðheit stemning í eftirpartýi Flóna Lífið Bubbi byrjaður á hugvíkkandi efnum Lífið 38 ára hreinn sveinn: Er til leið út úr þessum vítahring? Lífið Rappar um vímu Lífið Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Lífið Segir hlutverkið hafa bjargað lífi sínu Lífið Vilja að Íslandi verði vísað úr keppni ef ekki er fallist á kröfur þeirra Lífið Ísraelar þekkja ásakanir um stuld af eigin raun Lífið Skuggavaldið: Samsæriskenningum aldrei verið beitt svona áður Lífið Fleiri fréttir Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira