Menning

Kvennakórar heiðra Jón

Jón Ásgeirsson hefur samið lag við ljóð Snorra Hjartarsonar Ég heyri þau nálgast.
Jón Ásgeirsson hefur samið lag við ljóð Snorra Hjartarsonar Ég heyri þau nálgast. MYND/Hilmar Þ. Guðmundsson

Á morgun er fyrsti sunnudagur í aðventu og þá munu nokkrir kvennakórar víðs vegar af landinu frumflytja jólalagið Ég heyrði þau nálgast, eftir tónskáldið Jón Ásgeirsson. Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra, fékk Jón Ásgeirsson til að semja jólalag fyrir kvennakóra landsins, í tilefni af áttræðisafmæli hans hinn 11. október og heiður er að fá að flytja lagið nú á afmælisári hans. Textinn við lagið er eftir Snorra Hjartarson. Verður þessi nýi sálmur fluttur af átta kórum í átta krikjum á morgun.

Fyrir 1990 voru ekki nema fimm kvennakórar starfandi á landinu. Gróskan hefur verið mikil síðan þá og á stofnfundi Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra, 5. apríl 2003 gengu 17 kórar í sambandið. Í dag eru aðildarkórar sambandsins 28 talsins og telja meðlimir þess á annað þúsund konur. Tónverkasjóður Gígjunnar var stofnaður á aðalfundi sambandsins í október. Markmið og tilgangur Tónverkasjóðsins er að efla og styrkja íslenska kvennakóra. Til að ná þessu markmiði mun Tónverkasjóður Gígjunnar fá tónskáld til að semja tónverk fyrir kvennakóra landsins og þannig efla fjölbreytni og úrval tónlistar sem kvennakórar eiga kost á að flytja. Jólalag Jóns Ásgeirssonar er fyrsta verkið sem Tónverkasjóðurinn hefur kostað. - pbb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×