Körfubolti

Justin Shouse í Stjörnuna

Justin Shouse er á leið í Garðabæinn
Justin Shouse er á leið í Garðabæinn Mynd/Jón Björn

Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar í Garðabæ hefur samið við leikstjórnandann Justin Shouse um að leika með liðinu næsta vetur. Þetta staðfesti Gunnar Sigurðsson formaður kkd Stjörnunnar í samtali við Vísi. 

Shouse hefur leikið með Snæfelli síðustu tvær leiktíðar við nokkuð góðan orðstír, en hjá Stjörnunni fær hann það hlutverk að fylla skarð Dimitar Karadzovski sem rekinn var frá félaginu í síðasta mánuði.

"Við höfum verið að leita okkur að bakverði eftir að Dimitar fór við þessar miður skemmtilegu aðstæður og svo er Sævar (Haraldsson) að fara út í skóla. Við erum mjög ánægðir að vera að landa þarna einum besta leikstjórnanda á landinu," sagði Gunnar í samtali við Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×