Viðskipti innlent

Krónan veikist skyndilega á hálftíma

Gengi krónunnar hefur tekið snarpan sveig niður á við í morgun.
Gengi krónunnar hefur tekið snarpan sveig niður á við í morgun.

Gengi krónunnar hefur veikst hastarlega frá því viðskipti hófust á gjaldeyrismarkaði í dag, eða um 1,67 prósent, og stendur gengisvísitalan í 164,3 stigum.

Bandaríkjadalur, sem hefur verið á hraðferð síðustu daga, hefur að sama skapi gefið í. Hann rauf 87 krónu múrinn fyrir um hálftíma og stendur nú í 87,9 krónum. Dollarinn hefur ekki staðið í 88 krónum síðan seint í október árið 2002.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×