Formúla 1

Vettel yngsti sigurvegari í sögu Formúlunnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sebastian Vettel á brautinni í dag.
Sebastian Vettel á brautinni í dag. Nordic Photos / AFP

Sebastian Vettel frá Þýskalandi varð í dag yngsti ökuþórinn sem vinnur mót í Formúlu 1. Hann bar sigur úr býtum í ítalska kappakstrinum á Monza-brautinni.

Vettel var á ráspól og lét forystuna aldrei af hendi. Hann er 21 árs og 74 daga gamall í dag en gamla metið átti Fernando Alonso sem hann setti 22 ára og 26 daga gamall í ágúst árið 2003.

Heikki Kovalainen á McLaren varð í öðru sæti og Robert Kubica á BMW-Sauber í því þriðja.

Lewis Hamilton náði sjöunda sæti og er efstur í stigakeppni ökuþóra með 78 stig. Felipe Massa varð sjötti og er í öðru sæti með 77 stig.

Þetta er einnig fyrsti sigur Toro Rosso í Formúlunni en Vettel mun á næsta ári ganga til liðs við Red Bull.

Vettel náði tíu sekúndna forystu á Kovalainen strax eftir átján hringi er hann fór í sitt fyrsta viðgerðarhlé. Eftir það náði enginn að ógna forystu hans og Þjóðverjinn kláraði keppnina með stæl.

Úrslit:

1. Sebastian Vettel, Toro Rosso

2. Heikki Kovalainen, McLaren

3. Robert Kubica, McLaren

4. Fernando Alonso, Renault

5. Nick Heidfeld, BMW

6. Felipe Massa, Ferrari

7. Lewis Hamilton, McLaren

8. Mark Webber, Red Bull

9. Kimi Raikkönen, Ferrari

10. Nelson Piquet, Renault

Stigakeppni ökuþóra:

1. Hamilton 78 stig

2. Massa 77

3. Kubica 64

4. Raikkönen 57

5. Heidfeld 53

6. Kovalainen 51

7. Alonso 28

8. Jarno Trulli, Toyota 26

9. Vettel 23

10. Webber 20

Stigakeppni bílasmiða:

1. Ferrari 131 stig

2. McLaren 119

3. BMW 107

4. Toyota 41

5. Renault 36

6. Red Bull 25

7. Williams 17

8. Toro Rosso 17

9. Honda 14

10. Force India 0






Fleiri fréttir

Sjá meira


×