Viðskipti innlent

Bréf Færeyjabanka hækkaði mest í dag

Gengi bréfa í Færeyjabanka hækkaði um 2,86 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Þetta er mesta hækkunin á markaðnum í dag. Gengi bréfa í Bakkavör hækkað um 1,91 prósent og bréf 365 um 1,74 prósent.

Gengi bréfa í Teymi, Existu, Marel, Össuri, Kaupþingi, Alfesca, Glitni og Icelandair hækkaði um tæpt prósent.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa í Landsbankanum um 1,49 prósent, Eimskipafélaginu um 1,05 prósent og færeyska flugfélaginu Atlantic Airways um 0,91 prósent.

Úrvalsvísitalan hækkaði lítillega, eða um 0,09 prósent og stendur í 4.513 stigum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×