Sport

Guðmundur sænskur meistari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðmundur Stephensen, leikmaður Eslöv.
Guðmundur Stephensen, leikmaður Eslöv. Mynd/Daníel

Guðmundur Stephensen varð í gær sænskur meistari í borðtennis eftir að Eslöv, lið hans, vann Halmstad í úrslitarimmu um sænska meistaratitilinn.

Eslöv vann úrslitarimmunna 3-0 en í leiknum í gær vann Eslöv 5-2 sigur á Halmstad. Guðmundur vann tvo leiki, báða 3-0.

Guðmundur vann alla sex leiki sína í úrslitaeinvíginu en hann tapaði aðeins einum leik í sænsku deildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×