Golf

Ísland keppir á Evrópumóti áhugamanna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigmundur Einar Másson.
Sigmundur Einar Másson.

Ísland mun senda lið til þátttöku á Evrópumóti áhugakylfinga í golfi sem fer fram í byrjun næsta mánuðar á Ítalíu. Staffan Johansson, landsliðsþjálfari, hefur valið sex manna hóp fyrir mótið.

Hópinn skipa þeir Sigmundur Einar Másson, GKG, Ólafur Björn Loftsson, NK, Stefán Már Stefánsson, GR, Hlynur Geir Hjartarson, GK, Kristján Þór Einarsson, GKj og Sigurþór Jónsson, GR.

Leikið verður á Trent Jones Sr.-vellinum sem er par 72. Keppni hefst þann 1. júlí og stendur yfir til laugardagsins 5. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×