Íslenski boltinn

Jöfnunarmark KR var sjálfsmark

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
KR-ingar fagna jöfnunarmarki sínu í gær.
KR-ingar fagna jöfnunarmarki sínu í gær.

Kenneth Gustafsson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á lokamínútum leiks KR og Keflavíkur í gær.

Í fyrstu var talið að Guðjón Baldvinsson hefði skorað markið en Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, segir að um sjálfsmark hefði verið að ræða.

„Kenneth sagði mér að hann hefði skallað boltann beint í markið," sagði Kristján.

Sjálfur sagði Guðjón að fyrst hefði hann talið fullvíst að hann ætti markið.

„Það var snerting - á því er enginn vafi," sagði Guðjón við Vísi. „En ég veit ekki hvort ég hafi skallað í hann eða hvað gerðist. Ég sá þetta svo í sjónvarpinu og þá var nokkuð ljóst að þetta hafi verið sjálfsmark."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×