Menning

Örlög guðanna í myndum

Gullveig brennd Ein af myndskreytingum Kristínar Rögnu úr bókinni Örlög guðanna.
Gullveig brennd Ein af myndskreytingum Kristínar Rögnu úr bókinni Örlög guðanna.

Sýning á myndskreytingum Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur fyrir barnabókina Örlög guðanna, sem kom út fyrir hálfum mánuði á vegum Máls og menningar, verður opnuð í Þjóðminjasafninu í dag kl. 14. Bók þessi, sem er samstarfsverkefni mynd­skreytisins Kristínar og Ingunnar Ásdísardóttur sem skrifar textann, setur fram allar helstu sögur af norrænum goðum og gyðjum á þann hátt að bæði börn og fullorðnir geta haft gagn og gaman af.

Á opnuninni í dag verður ýmislegt skemmtilegt um að vera. Ingunn les upp úr bókinni og myndir Kristínar verða til sölu, auk þess sem höfundarnir munu árita bækur sínar. Alls verða rúmlega tuttugu myndir til sýnis sem sýna ýmis þekkt andartök eða hugmyndir úr heimi norrænnar goðafræði, til að mynda sköpunina, söguna af Iðunni og eplunum, sögurnar af dauða og bálför Baldurs, heimstrénu Aski Yggdrasils og svona mætti áfram telja.

Sýningin hangir uppi til 21. september og er aðgangur ókeypis.- vþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×