Bíó og sjónvarp

Rourke og Statham í 13

Mickey Rourke fer með hlutverk í spennumyndinni 13 í leikstjórn Gela Babluani.
Mickey Rourke fer með hlutverk í spennumyndinni 13 í leikstjórn Gela Babluani.

Mickey Rourke, Jason Statham og rapparinn 50 Cent hafa tekið að sér hlutverk í spennumyndinni 13 sem Frakkinn Gela Babluani leikstýrir. Áður hafði Sam Riley verið ráðinn í hlutverk í myndinni, sem er endurgerð 13 Tzameti sem Babluani leikstýrði einnig.

Kvikmyndin 13 fjallar um mann sem fer eftir leiðbeiningum, sem voru ætlaðar öðrum, um að stela pakka með miklum verðmætum. Tökur á myndinni hefjast í nóvember og verður hún frumsýnd næsta vor, eftir Óskarshátíðina. Vonast framleiðendurnir til að Rourke verði tilnefndur til Óskarsins fyrir myndina The Wrestler og þá ætti 13 að fá enn betri kynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.