Íslenski boltinn

Albert Guðmundsson

MYND/MYNDASAFN KSÍ
Brautryðjandi í íslenskri knattspyrnu. Fyrsti atvinnumaður Íslands og lék í Skotlandi, Englandi, Frakklandi og Ítalíu í tíu keppnistímabil, frá 1946 til 1955. Var í fyrsta landsliði Íslands og var fyrirliði þess í öðrum landsleik Íslands, 4-2 tapleik gegn Norðmönnum. Albert skoraði bæði mörk Íslands sem voru fyrstu mörk liðsins frá upphafi. Naut mikillar hylli í Frakklandi þar sem hann var kallaður „Hvíta perlan“. Fjórfaldur Íslandsmeistari með Val, frá 1942 til 1945. Árið 1962 lék hann öldungaleik ásamt öðrum gömlum stjörnum með AC Milan og skoraði mark liðsins í 2-1 tapi fyrir grannliði Inter.

Landsleikir: 6/2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×