Viðskipti erlent

Bréf í AMR ruku upp um 15 prósent

Við eitt af innritunarborðu American Airlines.
Við eitt af innritunarborðu American Airlines. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa hækkaði lítillega á bandarískum fjármálamörkuðum í dag. Verðlækkun á hráolíu á hlut að máli auk styrkingar á gengi bandaríkjadals gagnvart helstu gjaldmiðlum.

Helst voru það hlutabréf í fyrirtækjum sem eiga mikið undir olíuverði sem hækkaði. Þar á meðal eru flugfélög en gengi bréfa í AMR, móðurfélagi American Airlines, eins stærsta flugfélags Bandaríkjanna, rauk upp um rúm fimmtán prósent. Gengi annarra flugfélaga hækkaði sömuleiðis. Þar á meðal fór gengi bréfa í Delta Air Lines upp um átta prósent.

Gengið endaði í 6,31 dal á hlut. 

FL Group var um tíma í fyrra stærsti hluthafi AMR.

Dow Jones-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,28 prósent og Nasdaq-vísitalan um 1,33 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×