Golf

Birgir Leifur ekki í gegnum niðurskurðinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur.
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur. Nordic Photos / Getty Images

Birgir Leifur Hafþórsson lék í dag á 72 höggum á öðrum keppnisdegi opna Joburg-mótsins í Suður-Afríku en mótið er liður í Evrópumótaröðinni í golfi.

Birgir Leifur lék á 72 höggum í dag eða einu höggi yfir pari vallarins. Hann lék í gær á 75 höggum og er samtals á fimm höggum yfir pari. Nánast útilokað er að hann komist í gegnum niðurskurðinn. 

Keppt er á tveimur völlum á mótinu sem fer fram hjá Royal Johannesburg and Kensington klúbbnum. Í gær lék hann á Austurvellinum en lék á Vesturvellinum í dag.

Hann byrjaði daginn í dag með því að fá skolla, rétt eins og í gær. Hann fékk hins vegar par á þriðju braut og fékk par á næstu fjórum holum.

Birgir Leifur náði svo öðrum fugli á áttundu holu en missti svo parið á níundu. Hann lék því fyrri níu holurnar á pari.

Á seinni níu byrjaði hann á því að fá par á fyrstu fimm holunum. Hann fékk svo fugl á fimmtándu holu en fékk svo skolla á tveimur af síðustu þremur holunum, rétt eins og í gær.

Sem stendur er hann í 141.-160. sæti en það kemur endanlega í ljós í lok keppnisdagsins í hvaða sæti hann hafnar. 

Annar keppnisdagur: á pari

1. braut: Par 4 (374 metrar) - 5 högg (skolli)

2. braut: Par 5 (490 metrar) - 5 högg (par)

3. braut: Par 4 (425 metrar) - 3 högg (fugl)

4. braut: Par 4 (353 metrar) - 4 högg (par)

5. braut: Par 3 (111 metrar) - 3 högg (par)

6. braut: Par 4 (373 metrar) - 4 högg (par)

7. braut: Par 4 (373 metrar) - 4 högg (par)

8. braut: Par 3 (214 metrar) - 2 högg (fugl)

9. braut: Par 5 (507 metrar) - 6 högg (skolli)

Fyrri níu: Par 36 - 36 högg (á pari)

10. braut: Par 4 (386 metrar) - 4 högg (par)

11. braut: Par 4 (340 metrar) - 4 högg (par)

12. braut: Par 4 (412 metrar) - 4 högg (par)

13. braut: Par 3 (188 metrar) - 3 högg (par)

14. braut: Par 4 (434 metrar) - 4 högg (par)

15. braut: Par 5 (489 metrar) - 4 högg (fugl)

16. braut: Par 3 (163 metrar) - 4 högg (skolli)

17. braut: Par 4 (348 metrar) - 4 högg (par)

18. braut: Par 4 (452 metrar) - 5 högg (skolli)

Seinni níu: Par 35 - 36 högg (einu yfir pari)

Fyrsti keppnisdagur: 75 högg (4 yfir pari)

Annar keppnisdagur: 72 högg (1 yfir pari)

Samtals: 5 yfir pari (141.-160. sæti)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×