Viðskipti erlent

Tap Merrill Lynch meira en spáð var

John Thain, forstjóri Merrill Lynch.
John Thain, forstjóri Merrill Lynch. Mynd/AFP

Bandaríski fjárfestingabankinn Merrill Lynch skilaði tapi upp á 9,83 milljarða dala, jafnvirði 642 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi síðasta árs samanborið við 2,35 milljarða dala hagnað árið á undan. Langmestu munar um 15 milljarða dala afskriftir á skuldabréfavöndlum og verðbréfum sem tengjast bandarískum undirmálslánum.

Þetta jafngildir því að tap á hlut nemur 12,01 dal á hlut samanborið við 2,41 dala hagnað árið á undan. Þetta er tæplega þrisvar sinnum meira tap á hlut en markaðsaðilar höfðu reiknað með.

Afkoman merkir sömuleiðis að bankinn tapaði tæpum 7,8 milljörðum dala á öllu síðasta ári.

Bankinn hefur komið illa út úr lausafjárþurrðinni sem rót á að rekja til vanskila á annars flokks húsnæðislánum í Bandaríkjunum, sem greiningardeild Kaupþings gaf heitið undirmálslán, og þurft að afskrifa háar upphæðir úr bókum sínum af þeim sökum. Það hefur sett stórt skarð í bæði afkomu bankans og fellt markaðsverðmæti hans um 50 prósent. Af þessum sökum var forstjóra fyrirtækisins skipt út fyrir John Thain, fyrrum forstjóra kauphallarsamstæðunnar NYSE Euronext á haustdögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×