Formúla 1

Hamilton framlengir við McLaren

NordicPhotos/GettyImages
McLaren staðfesti í dag að Lewis Hamilton hefur framlengt samning sinn við McLaren um fimm ár. Hann verður hjá liðinu til 2012.

"Það er frábært að McLaren liðið hefur staðfest langtímasamning við mig.

Ég hef verið hluti af McLaren frá unga aldri, síðan 1998 og gæti vel hugsað mér að vera hjá liðinu allan minn ferill í Formúlu 1," sagði Hamilton í dag.

Hamilton ók á Jerez brautinni í vikunni á nýjum McLaren og er sáttur við framgang mála hjá McLaren þessa dagana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×