Afkoma Bank of America dregst saman 22. janúar 2008 16:01 Afskriftir á bandarískum fasteignalánum hefur sett stórt skarð í afkomu margra bandarískra banka á síðasta ársfjórðungi. Mynd/AFP
Hagnaður bandaríska bankans Bank of America nam 268 milljónum dala, jafnvirði rúmum 17,6 milljörðum íslenskra króna, á síðasta fjórðungi nýliðins árs. Til samanburðar nam hagnaðurinn 5,26 milljörðum dala á sama tíma í hitteðfyrra. Þetta er 95 prósenta samdráttur á milli ára. Afkoman skrifast að langmestu leyti á afskriftir vegna bandarískra fasteignalána og kaupa bankans á fasteignalánafyrirtækinu LaSalle af hollenska bankanum ABN Amro á síðasta ári. Tekjur námu 12,67 milljörðum dala á tímabilinu sem er 31 prósenti minna en á sama tíma ári fyrr. Þetta jafngildir því að hagnaður bankans á tímabilinu nemur fimm sentum á hlut samanborið við 1,16 dali á hlut fyrir fjórða ársfjórðung 2006. Afkoman er talsvert undir væntingum markaðsaðila en þeir höfðu reiknað með 18 senta hagnaði á hlut á tímabilinu.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Fékk 542 þúsund króna rukkun fyrir hreindýrakjötið Neytendur Flóðin á Spáni hafa áhrif á jólahefð Íslendinga Neytendur Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Viðskipti erlent Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum Viðskipti innlent Allir spá lægri vöxtum Viðskipti innlent Samtökin '78 selja slotið Viðskipti innlent Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna Viðskipti innlent Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Samstarf Rúnar nýr framkvæmdastjóri hjá Stólpum Gámum Viðskipti innlent Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira