Viðskipti erlent

Tímabundinn skellur á helstu fjármálamörkuðum

Helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum og Evrópu sneru snarlega úr hækkun í lækkun til skamms tíma eftir að bandaríska sjónvarpsstöðin CNBC greindi frá því að bandaríski fjárfestingarbankinn Goldman Sachs ætli að segja upp allt að fimm prósentum starfsmanna sinna. Þá spilar inn í orðrómur að stór banki í Evrópu neyðist til að afskrifa háar fjárhæðir úr bókum sínum vegna falls á skuldavöndlum sem tengjast bandarískum undirmálslánum og að vogunarsjóður glími við lausafjárþurrð og muni senn heyra sögunni til.

Gengi hlutabréfa hafði hækkað í allan dag þar til fréttin um uppsagnirnar fór í loftið í dag. FTSE-vísitalan hafði þá farið upp um rúmt prósent og Dax-vísitalan í Þýskalandi um rúm tvö prósent. Þá lá hækkun á bandarískum hlutabréfavísitölum við prósentið.

Þessi þróun snerist við á skömmum tíma.

Goldman Sachs, sem hefur komið einna best úr úr lausafjárkrísunni síðustu mánuði, segir fréttina hins vegar byggjast á misskilngi. Uppsagnirnar séu hluti af reglubundinni endurnýjun í starfsliði bankans og ætti einungis við um fimm prósent starfsfólks sem starfi tímabundið hjá bankanum. Fjarri væri að fimm prósentum af öllu starfsfólki væri að ræða.

Lækkunin gekk til baka á flestum mörkuðum eftir dýfuna skömmu eftir að fréttin um uppsagnirnar var leiðrétt.

Ekki liggur fyrir hvað liggi á bak við orðróminn um afskriftir hjá bankanum né heldur við hvaða banka sé átt. Hins vegar stefni allt í lausafjárþurrð hjá vogunarsjóði, að sögn fréttastofu Associated Press.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×