Formúla 1

Stöðugar framfarir markmið Honda

Honda liðið frumsýndi keppnisbíl sinn í höfuðstöðvum liðsins í Bretlandi í hádeginu. Ross Brawn, nýr framkvæmdastjóri liðsins fór fyrir sínum mönnum, en ökumenn liðsins verða Jenson Button og Rubens Barrichello.

Brawn var áður tæknistjóri Ferrari og vonast Honda menn að tilkoma hans muni glæða lífi í lið og bíl. Honda gekk ekki vel í fyrra.

"Markmiði okkar er að endurbæta bílinn hægt og bítandi, þannig að það verði stöðugar framfarir á milli móta. Við erum metnaðarfullir og mitt verk er að fá menn til að spila saman, bæði í Bretlandi og í Japan, þar sem vélarnar eru framleiddar," sagði Brawn. Hann vann áður mikið með Michael Schumacher og gerði hann að stórstjörnu ásamt þéttum vinnuhópi hjá Ferrari.

"Við þurfum að bæta bílinn þannig að hann verði auðveldari viðfangs en bíll síðasta árs, sem var erfiður í akstri. Við höfum breytt mörgu í bílnum frá fyrra ári, en hann á eftir að þróast hratt frram að fyrsta mótinu í mars," sagði Brawn.

Sjá nánar á kappakstur.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×