Formúla 1

Renault hyggst keppa til sigurs

Nýi Renault bíllinn var frumsýndur í París í dag
Nýi Renault bíllinn var frumsýndur í París í dag
París var vettvangur formlegrar frumsýningar Renault Formúlu 1 liðsins í

dag: Flavio Briatore kynnti nýju ökumenn sína til sögunnar, þá Fernando Alonso og Nelson Piquet.

Briatore var ekkert að skafa utan af hlutunum, enda kominn með gulldrenginn sinn Alonso í raðir liðsins á ný.

"Ég tel að Renault eigi að keppa um verðlaunasæti á ný og berjast til sigurs í mótum. Það er ekki auðvelt að landa meistaratitlinum og það eru helmingslíkur að við getum orðið meðal þeirra fyrstu fjögurra í einstökum mótum á þessu ári," sagði Briatore á kynningu Renault í dag.

"Ég tel að Alonso sé orðinn betri ökumaður, en þegar hann fór frá okkur fyrir tveimur árum. Hann sýndi góða takta í fyrra og hefur fært liðinu aukinn kraft og viljastyrk. Það er frábært fyrir Renault sem lið að hann er hjá okkur. Piquet er okkur mikilvægur líka og ungur ökumaður sem á eftir að gera góða hluti."

"Það spyrja mig margir afhverju við erum ekki með franskan ökumann hjá frönsku liði og það gæti orðið raunin í framtíðinni. En þessir kappar eru þeir bestu fyrir okkur í dag. Ég er sáttur við stöðuna," sagði Briatore.

Sjá nánar á kappakstur.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×