Viðskipti erlent

Starfsmenn Skagen fá 12 milljónir í bónus

Starfsfólk Skagen hefur sannarlega ástæðu til að fagna.
Starfsfólk Skagen hefur sannarlega ástæðu til að fagna. MYND/Getty Images

Á meðan flestir aðilar á verðbréfamörkuðum heims bera sig illa fagna eigendur, starfsmenn og viðskiptavinir norska fjárfestingarsjóðsins Skagen. Sjóðnum tókst furðuvel að halda sjó síðustu mánuði og við ársuppgjör í vikunni var ávöxtunin svo góð að hver einasti starfsmaður fékk sem svarar um tólf milljónum íslenskra króna í bónus.

Norska úrvalsvísitalan féll um tuttugu prósent fyrstu tuttugu dagana í janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×