Viðskipti innlent

Útflutningur á óunnum botnfiski eykst

Ýsa á ís.
Ýsa á ís. MYND/GVA

Útflutningur á óunnum botnfiski hefur aukist fyrstu fjóra mánuði fiskveiðiársins miðað við sama tíma í fyrra. Mest er aukningin í útflutningi á óunninni ýsu eða 32 prósent. Starfsgreinasambandið vill að ríkisstjórnin geri það fýsilegra fyrir fyrirtæki að vinna aflann hér á landi.

Þann fyrsta september síðast liðinn féll úr gildi 10 prósenta álag sem greitt var vegna útflutnings á gámafiski frá Íslandsmiðum. Álagið gerði það að verkum að aukalega dróst frá kvóta útgerða sem fluttu fiskinn óunninn úr landi. Fram kom á fréttavefnum Fishupdate.com að hagsmunaaðilar í Bretlandi hafi þrýst á um þessa breytingu ásamt íslensku fiskútflytjendum og kvótahöfum.

Fulltrúar Starfsgreinasambandsins funduðu í gær með fulltrúm ríkisstjórnarinnar vegna uppsagna fiskvinnslufólks að undanförnu en 456 manns hafa misst vinnuna síðan kvótaskerðining var ákveðin og um 120 til viðbótar búa við lokanir. Á sama tíma hefur útflutningur á óunnum fiski aukist. Þegar litið er tölur Fiskistofu kemur í ljós að um 32 prósenta aukning hefur orðið á fyrstu fjórum mánuðum þessa fiskveiðiárs á útflutningi á óunninni ýsu og um 13 prósent aukning á Þorski.

Meðal þess sem Starfsgreinasambandið vill að ríkisstjórnin geri er gera það fýsilegra, jafnvel að kvöð, að vinna sem mestan eða allan afla innanlands. Nefnd á vegum sjávarútvegsráðuneytisins átti að skila tillögum þar að lútandi síðasta sumar sem ekkert hefur bólað á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×