Formúla 1

Hamilton svívirtur í Barcelona

Lewis Hamilton var fórnarlamb kynþáttaníðs á Spáni í gær
Lewis Hamilton var fórnarlamb kynþáttaníðs á Spáni í gær AFP

Lewis Hamilton hjá McLaren fékk að heyra miður fallegar athugasemdir frá áhorfendum þegar hann var við prófanir á Montmelo brautinni í Barcelona á Spáni í gær ef marka má spænska fjölmiðla.

Spænska blaðið Marca greinir þannig frá því að stór hópur áhorfenda hafi hrópað svívirðingar í átt til hans þar sem hann var m.a. kallaður "svartur skítur" að sögn blaðsins.

Forráðamenn McLaren fordæmdu hegðun áhorfenda og ráðstafanir verða gerðar til að þetta endurtaki sig ekki þar sem meðal annars á að setja upp girðingar við svæði McLaren liðsins.

Hamilton er ekki vinsæll á Spáni eftir deilur sínar við spænska ökuþórinn Fernando Alonso þegar þeir óku saman hjá McLaren í fyrra og hafa þeir verið að skiptast á pillum í fjölmiðlum síðan.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem spænskir íþróttaáhorfendur eru til vandræða fyrir kynþáttaníð, en það er reglulegt og erfitt vandamál á knattspyrnuvöllunum í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×