Formúla 1

Forráðamenn McLaren kallaðir fyrir dómara

Ron Dennis, liðsstjóri McLaren, og ökuþórinn Lewis Hamilton.
Ron Dennis, liðsstjóri McLaren, og ökuþórinn Lewis Hamilton. Nordic Photos / Getty Images
Ítalskur dómari sem er að fylgja eftir njósnamálinu umtlalaða frá því í fyrra fyrir Ferrari og lögfræðinga liðsins vill fá forráðamenn McLaren á sinn fund þann 18. febrúar. Njósnamálinu er formlega lokið hjá FIA, en Ferrari fór í einkamál gegn Nigel Stepney sem stal gögnum frá liðinu.

Ron Dennis og Martin Whitmarsh, stjórar McLaren liðsins hafa fengið boð um að mæta fyrir dómara ásamt fleiri starfsmönnum McLaren. Ferrari rekur mál á Ítalíu og fyrir dómstólum í Bretlandi líka. Upp komst um njósnir þegar starfsmaður á ljósritunarstofu í Bretlandi áttaði sig á því að hann var að ljósrita leynileg gögn um Ferrari fyrir konu Mike Coughlan, sem var aðalhönnuður McLaren.

Coughlan er meðal þeirra sem hefur verið kallaður fyrir ítalska dómarann ásamt Nigel Stepney. Jean Todt hjá Ferrari vill ólmur ganga frá þessu máli og halda því áfram, þó svo að FIA hafi sektað McLaren um 100 miljónir dala í fyrra. McLaren hefur ekki sent frá sér yfirlýsingu um óskir dómarans ítalska.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×