Formúla 1

Hamilton fljótastur á Spáni

Lewis Hamilton.
Lewis Hamilton.

Bretinn Lewis Hamilton var fljótastur allra á æfingum á Jerez brautinni á Spáni í dag. Hann var brotabrotum á undan Pedro de la Rosa á samskonar bíl. Robert Kubia á BMW var skammt undan.

Japaninn knái, Kazuki Nakajima á Williams er búinn að sýna að hann á fullt erindi um borð í Formúlu 1 bíl. Hann var með fjórða besta tíma, rétt á undan öðrum nýliða, Brasilíumanninum Nelson Piquet.

Keppnislið æfa á Spáni næstu þrjár vikurnar, fyrst á Jerez og síðan á Barcelona brautinni.

Nánar á kappakstur.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×