Innlent

Skipulagðri leit að Cessnu formlega hætt

Skipulagðri leit að bandarísku flugvélinni sem hvarf af ratsjá 50 sjómílur vestur af Keflavík á mánudag hefur verið hætt.

Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að leitað hafi verið á öllu því svæði sem gera má ráð fyrir að björgunarbátur flugvélarinnar fyndist miðað við veðurfarslegar aðstæður og sjólag.

Eftirgrennslan heldur áfram og að sögn Landhelgisgæslunnar hefur þeim tilmælum verið beint til skipa og báta sem leið eiga um svæðið að þau litist gaumgæfilega um eftir hverju því sem bent gæti til afdrifa flugvélarinnar og flugmannsins. Auk þess munu skip og loftför Landhelgisgæslunnar svipast um á svæðinu í hefðbundnum eftirlitsferðum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×