Reyndu að svíkja út vörur fyrir tólf og hálfa milljón 14. febrúar 2008 10:02
Fjármunabrotadeild lögreglunnar á höfuborgarsvæðinu hefur frá 7. febrúar sl. unnið að rannsókn stórfelldra fjársvika gagnvart nokkrum rafvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Málið hófst með handtöku 2 manna er voru að sækja vörupöntun í verslun þann 7. febrúar. Árverkni starfsmanna þar, og í annarri verslun til viðbótar, hafði leitt til þess að lögreglu hafði verið gert viðvart um hugsanlega tilraun til fjársvika . Við rannsókn málsins kom fljótlega í ljós að fleiri voru viðriðnir það og voru 3 aðrir aðilar handteknir í kjölfarið. Krafist var gæsluvarðhalds yfir fjórum þeirra og úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur þá í gæsluvarðhald til 13. febrúar. Verðmæti þeirra vara sem reynt var að svíkja út nemur samtals um kr. 12.500.000 og af því tókst þeim að fá afhentar vörur í einni verslun fyrir um kr. 1.300.000. Þær vörur voru endurheimtar af lögreglu við húsleit á heimili eins sakborningsins. Þær vörur sem verið var að sækjast eftir við fjársvikin voru aðallega fartölvur, símar og annað því tengt. Fyrir liggur að fjársvik þessi voru þaulskipulögð með löngum fyrirvara og m.a. voru söluaðilar blekktir með fölsuðum millifærslustaðfestingum úr heimabönkum sem sendar voru með tölvupósti sem breytt hafði verið með þeim hætti að hann virtist stafa frá banka. Allir aðilar hafa játað aðild sína að málinu og hefur verið sleppt lausum.
Mest lesið Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ Innlent Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Erlent Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Innlent „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Innlent Árásarmannsins enn leitað Erlent Málið áfall fyrir embættið Innlent Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Innlent Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur Innlent Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Innlent Óttaðist hið versta þegar allar tengingar rofnuðu Innlent Fleiri fréttir Málið áfall fyrir embættið Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur Óttaðist hið versta þegar allar tengingar rofnuðu Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Hræðilegt að missa samskipti við umheiminn og veiðigjöldin Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Vesturbæingar búa sig undir fjögurra vikna sundlaugarlokun Mikill reykur vegna elds í bílatætara Vill taka upp stöðvarskyldu tveimur árum eftir að hún var afnumin Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Létt í lund þrátt fyrir margra klukkustunda bið eftir Lissabon „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Ráðherra skoðar frekari girðingar á strandveiðar Rafmagnið komið í lag og verðbólgan eykst á ný „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Fá ekki áheyrn vegna stympinga kennara og nemanda Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Foreldrar eigi að byrja á því að setja sjálfum sér skjátíma „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir „Við erum mjög háð rafmagninu“ Gyltur gjóta þrettán til sextán grísum í hverju goti Öryggi ógnað og refsingar fyrnist Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Sjá meira