Geðhjálp íhugar að kljúfa sig úr ÖBÍ 14. febrúar 2008 15:47 MYND/GVA
Ágreiningur er innan Öryrkjabandalagsins um stefnu þess segir framkvæmdastjóri Geðhjálpar og vísar til óánægjuradda innan bandalagsins. Aukaaðalfundur verður hjá bandalaginu í dag þar sem kjósa á nýjan formann í stað Sigursteins Mássonar, fulltrúa Geðhjálpar í stjórninni, sem hætti í janúar vegna deilna um skipan í stjórn Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalagsins. Tillaga meirihluta framkvæmdastjórnar Örykjabandalagsins að skipan í hússjóðinn var felld á fundi í síðasta mánuði og varð það til þess að Sigursteinn sagði af sér sem formaður. Hann taldi ljóst að ekki væri lengur trúnaður á milli hans og nýrrar stjórnar í hússjóði Öryrkjabandalagsins. Í kjölfar þessa óskaði Geðhjálp að fram færi aukaaðalfundur og verður hann haldinn í dag klukkan fimm. Þar á að kjósa nýjan formann og hefur þegar eitt framboð borist, frá Halldóri Sævari Guðbergssyni, formanni Blindrafélagsins. Menn geta þó boði sig fram á fundinum þannig að ekki er ljóst hvort fleiri verða í framboði. Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, viðurkennir að ágreiningur sé innan Örykjabandalagsins um stefnu þess. „Það eru mjög miklar óánægjuraddir innan dyra og frá okkar bæjardyrum séð getur það ekki staðið að aðildarfélag sé í rekstri og bjóði þjónustu um leið og það er hagsmunagæslufélag," segir Sveinn og vísar þar til hlutverks Öryrkjabandalagsins og rekstur þess á íbúðum. „Það vantar gjörsamlega viðhorfsbreytingu í þessu og að félögin innan bandalagsins fari að vinna að hagsmunatengslum og láti lögbæra aðila um að sinna búsetu og stoðþjónustu," segir Sveinn. Þessi krafa verði enn háværari þegar hússjóðurinn hafi verið staðinn að vanefndum á búsetuþjónustu sinni. Aðspurður hvort Geðhjálp íhugi að kljúfa sig frá Öryrkjabandalaginu segir Sveinn að hlutirnir þurfi að lagast til að samstarf haldi áfram. „Það stendur ekki til að segja sig úr bandalaginu á þessum fundi því svoleiðis hugmynd þyrfti fyrst að fá umfjöllun hjá stjórn Geðhjálpar og á aðalfundi þess félags," segir Sveinn.
Mest lesið Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ Innlent Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Erlent Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Innlent „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Innlent Árásarmannsins enn leitað Erlent Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Innlent Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur Innlent Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Innlent Óttaðist hið versta þegar allar tengingar rofnuðu Innlent „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Innlent Fleiri fréttir Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur Óttaðist hið versta þegar allar tengingar rofnuðu Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Hræðilegt að missa samskipti við umheiminn og veiðigjöldin Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Vesturbæingar búa sig undir fjögurra vikna sundlaugarlokun Mikill reykur vegna elds í bílatætara Vill taka upp stöðvarskyldu tveimur árum eftir að hún var afnumin Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Létt í lund þrátt fyrir margra klukkustunda bið eftir Lissabon „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Ráðherra skoðar frekari girðingar á strandveiðar Rafmagnið komið í lag og verðbólgan eykst á ný „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Fá ekki áheyrn vegna stympinga kennara og nemanda Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Foreldrar eigi að byrja á því að setja sjálfum sér skjátíma „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir „Við erum mjög háð rafmagninu“ Gyltur gjóta þrettán til sextán grísum í hverju goti Öryggi ógnað og refsingar fyrnist Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Fólk eigi ekki að breyta sínu daglega lífi vegna frásagna af hópnauðgun Sjá meira