Innlent

Fyrsti kjarasamningurinn hjá ríkissáttasemjara í þessari lotu

Verkalýðsfélag Akraness og Samtök atvinnulífsins undirrituðu í morgun sérkjarasamning vegna starfa í fiskimjölsverksmiðju HB Granda á Akranesi.

Fram kemur á heimasíðu verkalýðsfélagsins að þetta sé væntanlega fyrsti samningurinn sem hefur verið undirritaður hjá ríkissáttasemjara í þessari samningslotu sem nú stendur yfir.

Hækkanir á launaliðum samningsins eru með sama hætti og á hinum almenna vinnumarkaði, það er 18 þúsund króna hækkun frá 1. febrúar 2008, 13.500 krónur frá 1. mars 2009 og 6.500 krónur frá 1. mars 2010. Einnig var samið um ýmis önnur sérmál sem lúta að verksmiðjunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×