Innlent

Bjórdælur virka en posar ekki

Bjórinn flýtur á Ölstofunni í rafmagnsleysinu en enginn getur borgað nema hann eigi reiðufé. Og stemningin er rómantísk.
Bjórinn flýtur á Ölstofunni í rafmagnsleysinu en enginn getur borgað nema hann eigi reiðufé. Og stemningin er rómantísk.

Rafmagnlaust hefur verið í miðbænum undanfarin stundarfjórðung. Að sögn bilanavaktar Orkuveitunnar er um að ræða háspennubilun sem verið er að vinna í að laga.

Að sögn gests á Ölstofunni skapaðist ákveðið vandamál á staðnum þar sem bjórdælurnar virkuðu en þeir fjölmörgu gestir sem eru aðeins með kort gátu ekki borgað vegna þess að posarnir virkuðu ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×