Innlent

Slasaðist þegar hestur fældist vegna torfæruhjóla

Hestar. Myndin tengist fréttinni ekki.
Hestar. Myndin tengist fréttinni ekki. Mynd/ Heiða.

Stúlka féll af hestbaki í Grindavík í dag og hlaut áverka á baki þegar hestur hennar fældist við hávaða frá torfæruhjólum sem ekið var um í næsta nágrenni við hesthúsahverfið þar í bæ.

Að sögn vitnis fældust mörg hross við lætin í hjólunum. Bifhjólamennirnir voru enn í næsta nágrenni þegar lögregla og sjúkralið voru á staðnum en héldu sig í hæfilegri fjarlægð og óku að lokum í burtu með miklum gauragangi.

Þeir sem geta gefið lögreglu upplýsingar um hvaða ökumenn þarna voru á ferðinni eru vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×