Innlent

„Hrinti mér og öskraði, þetta er rán“

Snyrti- og fótaaðgerðarstofa Eddu á Hverfisgötunni.
Snyrti- og fótaaðgerðarstofa Eddu á Hverfisgötunni.

Misheppnuð ránstilraun var framin á Snyrti- og fótaaðgerðarstofu Eddu á Hverfisgötu fyrir skömmu. Rauðbirkinn, grannur karlmaður um þrítugt reyndi að ræna peningakassa stofunnar, en fótaaðgerðarfræðingur sá við manninum.

Inga Yngvadóttir var að klára síðasta kúnna dagsins þegar maðurinn mætti og bað kurteisilega um að fá að hringja. Inga leyfði honum það en var með annað augað á manninum þar sem henni fannst hann grunsamlegur. „Hann var greinilega drukkinn eða á einhverju öðru," segir Inga.

Inga var að klára kúnna sem kvaddi eftir að maðurinn hafði yfirgeið stofuna. Því næst fer hún að gera upp kassann þegar ræninginn birtist aftur. Nú þurfti hann rosalega mikið að pissa.

„Ég leyfi honum því að fara á klósettið en fann eitthvað á mér og tók því alla peningana og faldi þá undir búnka af blöðum sem voru þarna á borðinu," segir Inga.

„Þegar ég er nýbúin að því kemur hann æðandi útaf klósettinu hrindir mér utan í skáp og öskrar að þetta sé rán. Hann heimtar peningana úr kassanum en ég segi að þar séu engir peningar þar sem allir borgi með korti."

Inga hleypur út á stétt, hoppar og veit ekkert hvað hún á að gera. Maðurinn reiðist, hleypur út og hverfur. „Hann hafði samt slegið í blaðabúnkann rétt áður og tók ekki eftir öllum peningunum sem þeyttust út um allt."

Kúnninn sem hafði verið inni hjá Ingu eltir manninn á bíl og sér hann hitta stórann þrekvaxinn karlmann rétt hjá. „Hann hefur örugglega ætlað að ræna mig til þess að borga þessum manni sem brást illa við peningaleysinu og lamdi ræningjann," segir Inga.

Lögreglan hafði síðan hendur í hári mannisins stuttu síðar. Inga segist hafa verið nokkuð skelkuð þegar maðurinn réðist inn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×