Formúla 1

Hamilton aftur fljótastur á Spáni

AFP

McLaren ökumaðurinn Lewis Hamilton var enn og aftur í sérflokki á æfingum í Barcelona þar sem Formúluökuþórarnir undirbúa sig nú fyrir fyrstu keppni ársins sem verður í Ástralíu um miðjan næsta mánuð.

Hamilton náði besta tímanum á Katalóníubrautinni og annar varð félagi hans Heikki Kovalainen. Heimsmeistarinn Kimi Raikkönen á Ferrari náði þriðja besta tímanum, en fyrrum heimsmeistarinn Fernando Alonso náði aðeins 13. sætinu á Renault bíl sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×