Formúla 1

Sýnarmenn að tjaldabaki í Barcelona

Friðrik Þór mundar vélina á æfingasvæðinu
Friðrik Þór mundar vélina á æfingasvæðinu

Starfsmenn Sýnar dvöldu að tjaldabaki í Barcelona á æfingum keppnisliða síðustu daga, en það var liður í margslunginni þáttagerð sem stendur til hjá Sýn vegna Formúlu 1.

Verið er að undirbúa fjölda nýrra þátta og sannkallaðrar kappakstursveislu vikuna fyrir fyrsta mót. Þá verður þáttur um frumsýningar keppnisliða, viðtöl við ökumenn og tæknimenn að tjaldabaki í Barcelona og fyrsti þátturinn af mörgum sem sýnir Formúlu 1 frá nýrri hlið, þáttur á mannlegu nótunum.

Friðrik Þór Halldórsson myndatökumaður og Gunnlaugur Rögnvaldsson umsjónarmaður Formúlu 1 á Sýn kynntu sér gang mála hjá keppnisliðum í Barcelona þegar æfingar stóðu sem hæst og tóku fjölda aðila tali.

Meðal þeirra Kimi Raikkönen hjá Ferrari, Íslandsvinina Nico Rosberg hjá Williams og Mark Webber hjá Red Bull Reanult. Þá ræddu þeir við fjölda tæknistjóra, m.a. Ross Brawn hjá Honda sem var áður aðalmaðurinn hjá Ferrari ásamt Michael Schumacher.

Þátturinn um heimsókn Sýnar að tjaldabaki í Barcelona verður sýndur 12.

mars, en tveimur dögum áður verður sýnt frá frumsýningum Formúlu 1 liða á Sýn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×