Viðskipti erlent

Mannleg mistök orsökuðu rafmagnsleysi 2,5 milljón manns

Rafmagnsver í Flórída.
Rafmagnsver í Flórída. MYND/AFP

Bandaríska orkufyrirtækið Florida Power and Light segir mannleg mistök hafa átt sér stað þegar meira en tvær og hálf milljón viðskiptavina þeirra urðu rafmagnslausar vegna bilunar. Tveggja síðna bráðabirgðaskýrsla var gefin út um málið þar sem sökinni er skellt á viðgerðarmann sem var að rannsaka bilaðan rofa í rafstöð vestur af Miami.

Fyrirtækið segir á vefsíðu New York Times að tveir kjarnaofnar og gaseining við Turkey Point suður af Miami hafi slökknað. Tvær aðrar orkustöðvar fyrirtækisins urðu einnig fyrir áhrifum vegna þessa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×