Formúla 1

Hamilton ætlar sér sigur í Ástralíu

Lewis Hamilton
Lewis Hamilton

Það er aðeins vika í fyrsta Formúlu 1 mót ársins. Bretinn Lewis Hamilton hjá McLaren stefnir á sigur á götum Melbourne í Ástralíu. Hamilton, Felipe Massa, Kimi Raikkönen og Heikki Kovalainen eru líklegastir til að standa fremstir í fyrsta móti, ef marka má æfingar síðustu vikur.

,,Ég er einbeittari en í fyrra og yfirvegaðri. Í fyrra var ég fullur eldmóðs og vildi sigra heiminn, en núna hef ég meiri reynslu og visku. Veit hvernig á að spara orkuna og nota hana á réttum tíma", segir Hamilton um væntanlegt mót.

Sjá nánar á kappakstur.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×