Formúla 1

Ecclestone í deilum við Ástrali

NordcPhotos/GettyImages

Formúlueinvaldurinn Bernie Ecclestone stendur nú í deilum við mótshaldara í Ástralíukappakstrinum vegna tímasetningar keppninar. Vegna tímamismunar fer keppnin fram um nótt að evrópskum tíma og það þykir Ecclestone skemma fyrir í sjónvarpsmálunum í álfunni.

Ecclestone er enn að þrátta við Ástralina um að seinka keppninni svo hún verði á boðlegri tíma fyrir evrópska sjónvarpsáhorfendur og vill reyna að færa hana frá því um fjögur um nóttina til að minnsta kosti sex um morguninn.

En hann lætur ekki þar við sitja og vill helst að andfætlingarnir keppi um miðja nótt.

"Þetta þarf að vera miðnæturkeppni. Það væri frábært ef keppnin gæti verið um klukkan tvö eftir hádegi svo evrópskir áhorfendur gætu séð það, en þá þyrfti keppnin auðvitað að byrja um miðja nótt í Ástralíu. Því seinna sem hún byrjaði í Ástralíu - því betra fyrir Evrópu segi ég. En það er kannski skárra að vakna klukkan sex en klukkan þrjú um nóttina," sagði Ecclestone.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×