LeBron James prýðir forsíðu Vogue 14. mars 2008 13:49 LeBron James og Gisele Bundchen
Körfuboltastjarnan LeBron James fær þann heiður í næsta mánuði að prýða forsíðu glanstímaritsins Vogue. Hann verður aðeins þriðji karlinn til að prýða forsíðu blaðsins auk þeirra George Clooney og Richard Gere. Þetta er í þriðja skipti í 116 ára sögu blaðsins sem karlmaður prýðir forsíðuna og er þetta til marks um þá gríðarlegu athygli sem James nýtur í íþróttaheiminum í dag. James hefur þegar setið fyrir á forsíðu flestra helstu tímarita í Bandaríkjunum og var meðal annars á forsíðu Sports Illustrated þegar hann var aðeins 17 ára gamall undir fyrirsögninni "Sá Útvaldi" James hefur merkilegt nokk náð að standa undir öllum þeim væntingum sem til hans voru gerðar þegar hann kom inn í NBA deildina sem unglingur og er þegar orðinn einn besti - ef ekki besti körfuboltamaður á jörðinni. Það verður ofurfyrirsætan Gisele Bundchen, kærasta leikstjórnandans Tom Brady hjá New England Patriots, sem situr fyrir með LeBron James í aprílhefti Vogue og er myndanna beðið með mikilli eftirvæntingu. Richard Gere var á forsíðu Vogue ásamt konu sinni Cindy Crawford árið 1992 og Clooney sat einmitt fyrir með Gisele Bundchen árið 2000. James er langstigahæsti leikmaður NBA deildarinnar með 30,9 stig að meðaltali í leik, 8,1 frákast og 7,4 stoðsendingar.
NBA Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótbolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Sjá meira