Formúla 1

Lewis Hamilton: Minn besti sigur

mynd: kappakstur.is
Bretinn Lewis Hamilton telur að sigurinn í Melbourne sé sá besti frá upphafi. Hann leiddi mótið frá upphafi til enda.

,,Þessi sigur færir mér meiri ánægju en allir hinir. Ástæðan er sú að mér finnst ég betri á öllum sviðum. Ég hef sett mér markmið og um leið aukið pressuna, en þetta byrjaði eins og best verður á kosið", sagði Hamilton í dag.

,,Þetta var ekki fullkominn sigur, því ég get bætt mig ýmsum sviðum. En ég náði að hugsa vel um dekkin og ráða ferðinni í brautinni sem gerir það að verkum að mér líður betur um borð í bílnum. "

Nico Rosberg og Hamilton eru góður félagar og þeir fögnuðu vel saman, en þeir voru mikið í kart kappakstri á árum áður. Byrjuðu þannig saman. Núna mættu þeir saman á verðlaunapall og fögnuðu duglega fyrir verðlaunaafhendingunni.

,,Við sögðum í gamla daga að kannski yrðum við saman í Formúlu 1 þegar við værum eldri og það rættist og draumurinn um að komast á verðlaunapall líka...", sagði Hamilton.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×