Formúla 1

Raikkonen vann í Malasíu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Felipe Massa var með forystuna fyrst um sinn en féll svo úr leik.
Felipe Massa var með forystuna fyrst um sinn en féll svo úr leik. Nordic Photos / AFP

Finninn og heimsmeistarinn Kimi Raikkönen fagnaði sigri í Formúlu 1-keppninni í Malasíu í morgun eftir að félagi hans, Felipe Massa, datt úr leik um miðja keppni.

Ferrari-mennirnir voru með örugga forystu alla keppnina en Massa var á ráspól. Hann féll svo úr leik eftir að hann missti stjórn á bílnum sem festist í möl í kjölfarið.

Massa hélt forystunni fyrst um sinn en eftir fyrsta þjónustuhléið náði Raikkönen að taka forystusætið af Massa. Hamilton var í fimmta sætinu fyrir fyrsta viðgerðarhléið en mistök á viðgerðarsvæðinu kostuðu hann dýrmætan tíma þar.

Eftir þetta var Raikkönen í öruggri forystu og Pólverjinn Robert Kubica fylgdi honum í öðru sæti allt til loka keppninnar.

Heikki Kovalainen, ökumaður McLaren, varð í þriðja sæti, Jarno Trulli, Toyota, varð fjórði og Lewis Hamilton varð að gera sér fimmta sætið að góðu.

Hamilton fékk þrjú stig í dag sem þýðir að hann er enn með forystu í stigakeppni ökuþóra, með þriggja stiga forystu á Raikkönen.

Úrslitin:



1. Kimi Raikkönen, Ferrari

2. Robert Kubica, BMW

3. Heikki Kovalainen, McLaren

4. Jarno Trulli, Toyota

5. Lewis Hamilton, McLaren

6. Nick Heidfeld, BMW

7. Mark Webber, Red Bull

8. Fernando Alonso, Renault

9. David Coulthard, Red Bull

10. Jenson Button, Honda

11. Nelson Piquet, Renault

12. Giancarlo Fisichella, Force India

13. Rubens Barrichello, Honda

14. Nico Rosberg, Williams

15. Anthony Davidson, Super Aguri

16. Takuma Sato, Super Aguri

17. Kazuki Nakajima, Williams



Úr leik:


Sebastian Vettel, Toro Rosso

Adrian Sutil, Force India

Timo Glock, Toyota

Sebastian Bourdais, Toro Rosso



Stigakeppni ökuþóra:


1. Hamilton 14 stig

2. Raikkönen 11

3. Heidfeld 11

4. Kovalainen 10

5. Kubica 8

6. Rosberg 6

7. Alonso 6

8. Truli 5

Stigakeppni bílasmiða:

1. McLaren 24 stig

2. BMW 19

3. Ferrari 11

4. Williams 9

5. Renault 6

6. Toyota 5

7. Red Bull 2

8. Toro Rosso 2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×