Kalli Bjarni fluttur heim til mömmu 1. apríl 2008 10:00 Kalli Bjarni er kominn heim á hótel mömmu og verður þar þangað til hann fer á Litla-Hraun eftir rúmar þrjár vikur. „
Hann er kominn heim á hótel mömmu og verður hjá mér þangað til hann fer inn," segir Sveinbjörg Karlsdóttir, móðir Kalla Bjarna, sem handtekinn var á föstudaginn á Hótel Vík ásamt vinkonu sinni með 65 grömm af amfetamíni. Sveinbjörg segir að Kalli Bjarni hafi verið í rugli undanfarin einn og hálfan mánuð og að hann sé afar illa farinn eftir ólifnað undanfarinna vikna. „Hann er grindhoraður, með bauga undur augum og raddlaus," segir Sveinbjörg. Hún segir að hann hafi beðið hana um að fá að búa hjá sér þar til hann hefur afplánun á tveggja ára dóm sem hann fékk fyrir að reyna að smygla tveimur kílóum af kókaíni í júní á síðasta ári, þann 23. apríl næstkomandi. „Ég fékk símtal frá honum á laugardaginn þar sem hann sagði mér frá handtökunni og hann var eyðilagður maður. Hann bað um að fá að búa hjá mér og maður segir auðvitað ekki nei. Ég stend enn hundrað prósent á bak við hann og hef ekki misst vonina á að hann nái sér aftur," segir Sveinbjörg. Kalla Bjarna bauðst að fara í meðferð inn á Vog strax eftir að hann var handtekinn á föstudaginn og dvelja þar fram að afplánun en hann afþakkaði boðið þar sem hann átti eftir að klára hluti áður en hann hefur afplánun á Litla-Hrauni. „Hann á börn sem hann þarf að kveðja og síðan þarf hann að gera hreint fyrir sínum dyrum á mörgum stöðum. Ég veit ekki hvort það hefði verið sniðugt hjá honum að fara beint í meðferð og þaðan í fangelsið. Hann er edrú núna og vonandi verður hann það þar til hann fer inn. Þá tekur við sama prógramm og hann var í þegar hann sat í gæsluvarðhaldi og ég bið til guðs að hann haldi sér edrú þarna inni."Fangelsi, föðurmissir og skilnaðurSveinbjörg Karlsdóttir, móðir Kalla Bjarna, hefur mestar áhyggjur af börnum hans sem hafa orðið fyrir miklu einelti.Sveinbjörg segir að undanfarnir mánuðir hafi verið afskaplega erfiðir fyrir Kalla Bjarna. „Allt frá því að hann var tekinn hefur hvert áfallið á fætur öðru dunið yfir. Skömmu eftir að hann var laus úr gæsluvarðhaldi veiktist faðir hans og lést síðan eftir tveggja mánaða baráttu. Í kjölfarið skildi hann síðan við konuna sína og þá var ekki að sökum að spyrja. Í erfiðleikum velja fíklar léttustu leiðina og það gerði Kalli Bjarni. Hann datt í dópið með þeim árangri sem við þekkjum öll," segir Sveinbjörg.Og þótt hún beri sterkar tilfinningar til sonar síns þá eru það börnin hans tvö sem hún hefur mestar áhyggjur af. „Börnin hans hafa lent í miklu einelti út af föður þeirra. Þetta eru saklaus fórnarlömb sem þurfa að líða fyrir syndir föðurins og það er í raun skelfilegt að hugsa sér hvað þau hafa gengið í gegnum. Börn eru afskaplega grimm og það er ekki auðvelt fyrir sex ára gamlan son hans að þurfa að hlusta á aðra krakka kalla pabba hans dópista. Ég vil bara brýna fyrir foreldrum í Grindavík að tala við börnin sín til að koma í veg fyrir að þetta haldi áfram," segirSveinbjörg sem hefur ekki enn misst trúna á að sonur hennar geti losnað úr viðjum fíknarinnar. „Ég hef fulla trú á að hann sigri í þessu stríði. Systir hans var mun verr á sig kominn en hún hefur verið edrú núna í nær tvö ár. Það sýnir honum að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi," segir Sveinbjörg.
Mest lesið Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Innlent Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Innlent „Fólk er einfaldlega hrætt“ Erlent Leitin að Slater blásin af Erlent Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Innlent Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám Erlent „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Erlent „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Innlent Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Innlent Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Innlent Fleiri fréttir Hundsbitum fari fjölgandi Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Viðbrögð við sögulegum tölum í Frakklandi í beinni Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Séra Arna Ýrr tekur við af verðandi biskupi Grafarvogsbúar þurfi ekki að óttast blokkir Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Tónlistarveisla framundan í Skálholti Fórna sumarfríinu til að hjálpa fólki á hálendinu Öflugur skjálfti í Bárðarbungu Kosningar, uppbygging í Grafarvogi og hálendisvakt „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Tekinn próflaus á 120 kílómetra hraða Samsæriskenningar, borgarstjóri um húsnæðismál og kosningar Stungumaðurinn á hlaupahjólinu áfram í haldi Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Riðu um miðbæinn til að fagna Landsmóti Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum 82 ára snillingur í Hafnarfirði í hannyrðum „Hann á að vera hér á Íslandi“ Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Alvarlegar aukaverkanir af brúnkunefspreyjum og brottvísun Yazans Tamimi Rændi fötum fyrir nánast hundrað þúsund Hugsi yfir lausagöngu fjár við vegi eftir að ferðamaður ók á lamb Séra Aldís Rut ráðin prestur við Grafarvogskirkjuprestakall Parísarhjólið varla óvinsælt ef sextíu þúsund vilja taka snúning Rabarabarahátíð í gamla bænum á Blönduósi Býst ekki við nýju eldgosi Hyggst ekki flýta bílabanni og efasemdir um nýtt eldgos Sjá meira