Formúla 1

Hamilton hefur farið aftur

AFP

Fyrrum heimsmeistarinn Niki Lauda segir að ungstirninu Lewis Hamilton hjá McLaren hafi farið aftur frá því í fyrra. Hamilton náði aðeins 13. sæti í Barein-kappakstrinum um helgina og hefur alls ekki náð sér á strik síðan hann sigraði á opnunarmótinu í Ástralíu.

"Lewis er alls ekki að gera gott mót núna," sagði Lauda í samtali við Daily Mail. "Ég hélt að hann yrði betri í ár en í fyrra, en honum hefur farið aftur. Hann er í frekar vondum málum núna. Árekstur hans við Alonso og óhappið á föstudagsæfingunni var algjör óþarfi. Lewis sýndi ekkert í Barein og ég er ekki frá því að hann sé að setja of mikla pressu á sjálfan sig," sagði Ástralinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×