Fótbolti

Podolski verður ekki seldur í janúar

Podolski hefur upplifað stormasama tíma í herbúðum Bayern
Podolski hefur upplifað stormasama tíma í herbúðum Bayern NordicPhotos/GettyImages

Uli Hoeness, framkvæmdastjóri Bayern Munchen, hefur ítrekað að framherjinn Lukas Podolski verði ekki seldur frá félaginu í janúar.

Landsliðsmaðurinn þýski hefur átt undir högg að sækja hjá félaginu undanfarin misseri og hefur mátt þola harða gagnrýni t.a.m. frá Franz Beckenbauer.

"Það er ekki til umræðu. Við erum ekki að hugsa um að selja Podolski í janúar," sagði Hoeness í samtali við þýska fjölmiðla í dag.

Podolski sjálfur sagði nýverið í viðtali að hann væri að hugsa sér til hreyfings í janúar eftir að ljóst varð að hann væri ekki inni í myndinni sem byrjunarliðsmaður. Hann er samningsbundinn til 2010 en hefur m.a. verið orðaður við félög í ensku úrvalsdeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×