Körfubolti

Njarðvíkingar styrkja sig

Elvar Geir Magnússon skrifar
Heath Sitton. Mynd/bransondailynews.com
Heath Sitton. Mynd/bransondailynews.com

Njarðvíkingar hafa krækt sér í tvo bakverði sem leika munu með félaginu á næstu leiktíð. Þetta kemur fram á vefsíðunni karfan.is.

Annar þeirra er Slobodan Subasic sem lék með Snæfelli á síðustu leiktíð en hinn er Bandaríkjamaðurinn Heath Sitton sem er leikstjórnandi.

Sitton lék á Írlandi á síðustu leiktíð og var með 20,2 stig að meðaltali í leik, 4,6 fráköst, 3,4 stoðsendingar og 1,8 stolinn bolta.

Slobodan lék 20 deildarleiki með Snæfellingum í fyrra og varð með þeim bikarmeistari. Í deildinni gerði Subasic 12,3 stig að meðaltali í leik.

Njarðvíkingar mæta með töluvert breytt lið til leiks á næstu leiktíð rétt eins og mörg fleiri lið í Iceland Express deild karla en miklar hræringar hafa verið á hinum íslenska leikmannamarkaði.

karfan.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×