Formúla 1

Hönnuður McLaren rekinn

McLaren liðið í Formúlu 1 hefur rekið bílahönnuðinn sem var í hringiðu njósnamálsins á síðasta tímabili. Hann heitir Mike Coughlan og það var á heimili hans sem 780 blaðsíðna skýrsla um starfsemi Ferrari fannst á sínum tíma.

Coughlan var vísað frá liðinu á sínum tíma en var ekki rekinn af lagalegum ástæðum. Talsmaður McLaren hefur nú staðfest að starfsmaðurinn hafi verið rekinn.

BBC greinir frá þessu í morgun en segir jafnframt að Coughlan hafi beðið forráðamenn Ferrari afsökunar á gjörðum sínum, en Ferrari-menn ráku starfsmanninn sem sakaður var um að koma gögnunum til Coughlan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×