Viðskipti erlent

Birgir Moss Bros vill hluti Baugs

Slaufur í einni af verslunum Moss Bros.
Slaufur í einni af verslunum Moss Bros.

Berwin & Berwin, einn af stærstu birgjum bresku herrafataverslunarinnar Moss Bros hefur sýnt áhuga á að kaupa 20 prósent af hlut Baugs í versluninni. Baugur á 29 prósent í Moss Bros.

Þetta fullyrðir vefútgáfa Retail Week á föstudag.

Baugur gerði óbindandi yfirtökutilboð í Moss Bros upp á 42 pens á hlut seint í febrúar. Það hljóðaði í heild upp á 40 milljónir punda, jafnvirði um sex milljarða íslenskra króna.

Tilboðið mætti strax mikilli andstöðu rótgróinna hluthafa. Á sama tíma jók eignarhaldsfélag tískuvörurisans Lauru Ashley hratt við hlutabréfaeign sína í bresku versluninni og flaggaði tæpum tíu prósenta hlut fyrir um hálfum mánuði. Baugur féll svo frá yfirtökutilboðinu snemma í síðustu viku vegna hræringa í hluthafahópnum.

Í kjölfarið fór orðrómur á kreik að Philip Mountford, forstjóri Moss Bros, muni segja starfi sínu lausu. Retail Week segir þetta úr lausu lofti gripið en bætir við að menn telji að ró færist yfir verslunina bresku og upphlaupið í hluthafahópnum fjari út nú þegar Baugur hefur dregið yfirtökutilboðið til baka.

Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, sagði í tilkynningu sem félagið sendi frá sér á sama tíma og tilkynnt var um að hætt hefði verið við yfirtökutilboðið í vikunni, að Baugur muni starfa áfram með stjórnendum Moss Bros og öðrum hluthöfum verslunarinnar.

Enginn hlutaðeigandi vildi tjá sig um málið, að sögn Retail Week.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×