Formúla 1

Hamilton hlakkar til að keppa á Spáni

Elvar Geir Magnússon skrifar
Lewis Hamilton kátur.
Lewis Hamilton kátur.

Þrátt fyrir að hafa orðið fyrir kynþáttafordómum áhorfenda á brautinni í Barcelona í febrúar þá er Hamilton fullur tilhlökkunar fyrir kappaksturinn þar um helgina.

Þessi 23 ára breski ökuþór fékk óblíðar móttökur við æfingar í Barcelona fyrr á þessu ári. Þar spiluðu deilur hans við Fernando Alonso í fyrra inn í dæmið en Alonso er ótrúlega vinsæll á Spáni.

„Brautin í Katalóníu er mögnuð. Andrúmsloftið er frábært enda margir mjög tilfinningaríkir og ákafir stuðningsmenn sem fylgjast með," sagði Hamilton sem er fimm stigum á eftir Kimi Räikkonen í heildarkeppni ökumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×